Vettel fljótastur
Sebastian Vettel hjá Red Bull ók hraðast á fyrsta degi bílprófanalotu sem hófst í Barcelona á Spáni í dag. Landi hans Nico Hülkenberg á Force India var næstfljótastur og þriðja besta tímann átti Lewis Hamilton á McLaren.
Flestir náðu þessir bestu hringjum sínum í morgunsvalanum en eftir hádegi - með hækkandi sól og vaxandi brautarhita - völdu liðin að aka í löngum lotum. Í blálok dagsins tók Vettel aftur stutta spretti og setti þá sinn besta tíma, hinn eini af sjö hröðustu ökumönnum sem það gerði.
Lotusliðið átti í vanda með bíl sinn. Romain Grosjean sagði hann hafa hegðað sér einkennilega og var akstri hætt eftir sjö hringi. Var þetta nýr undirvagn en liðið ákvað að senda hann aftur í bílsmiðjuna í Englandi til rannsóknar og taka fyrri 2012-bílinn aftut til æfinga.
Charles Pic hóf æfingar Marussia í dag og ók alls 121 hring eða fleiri á fyrsta degi í nýjum bíl en nokkur annar ökuþór hefur gert það sem af er ári.
Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Bil | Hri. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Vettel | Red Bull | 1:23.265 | 79 | ||
| 2. | Hülkenberg | Force India | 1:23.440 | +0.175 | 97 | |
| 3. | Hamilton | McLaren | 1:23.590 | +0.325 | 114 | |
| 4. | Ricciardo | Toro Rosso | 1:23.618 | +0.353 | 76 | |
| 5. | Alonso | Ferrari | 1:24.100 | +0.835 | 75 | |
| 6. | Schumacher | Mercedes | 1:24.150 | +0.885 | 51 | |
| 7. | Perez | Sauber | 1:24.219 | +0.954 | 66 | |
| 8. | Senna | Williams | 1:25.711 | +2.446 | 97 | |
| 9. | Kovalainen | Caterham | 1:26.035 | +2.770 | 31 | |
| 10. | Grosjean | Lotus | 1:26.809 | +3.544 | 7 | |
| 11. | Pic | Marussia | 1:28.026 | +4.761 | 121 |







