Ferrari vildi fá Trulli
Jarno Trulli segir frá því að honum hafi boðist að keppa fyrir Ferrari er hann var á mála hjá Toyta. Af því varð ekki þar sem hann var ekki með lausan samning við lið sitt.
Trulli segir það hafa verið sem rauður þráður á ferli hans að standa við gerða samninga. Af þeim sökum gat hann ekki tekið boði Jean Todt. „Ég hef alltaf staðið við samninga, þess vegna hef ég aldrei þurft á lögfræðingi að halda á 15 ára ferli mínum í formúlu-1,“ segir Trulli við ítalska akstursíþróttaritið Autosprint.
Trulli sést ekki meir á rásmarki formúlunnar eftir að hafa verið þar fastamaður á árunum 1997-2011. Caterham-liðið virti ekki samning við hann og kaus að setja Vitaly Petrov í hans stað, enda fær það með því fúlgur fjár rússnesks styrktarfé. Trulli hefur aldrei borgað undir sæti eins og algengt er nú til dags í formúlu-1.
Eftir árangursríkan feril með Renault keppti Trulli með Toyota 2004 til 2009. Mun það hafa verið í upphafi þess sem Todt bauð honum að koma til Ferrari, en Trulli hafði bundist japanska liðinu til langs tíma og vildi ekki ganga á bak þess samnings.
„Enginn veit þetta en ég held ég geti nú skýrt frá því og þakkað Jean Todt opinberlega fyrir að vera einn af liðsstjórum toppliða til að hafa trú á mér. Það hefur ekki verið á vitorði manna en Todt bauð mér sæti keppnisþórs hjá Ferrari,“ segir Trulli í viðtalinu.
„Ég hef alltaf heiðrað skuldbindingar mínar. Því miður gat ég ekki þegið boðið,“ bætir hann við.








