Hülkenberg á toppnum
Nico Hülkenberg hjá Force India setti besta brautartímann við reynsluakstur í Barcelona í dag. Hrintími sá kom fyrir hádegið enda einbeittu liðin sér að langakstri síðdegis í stað stuttra spretta.
Einn örfárra ökumanna til að bæta sig síðdegis var Fernando Alonso á Ferrari sem setti sinn besta hring á síðasta hálftímanum í dag. Hinir voru finnski ökumaðurinn Valtteri Bottas hjá Williams og franski ökumaðurinn Charles Pic hjá Marussia. Það breytti þó engu um röð þeirra tveggja.
Bæði Red Bull og McLaren líktu eftir keppni með dekkjastoppum þar sem ökumenn skiptu yfir á hin mismunandi dekkjagerðir til að kanna nýtni þeirra við keppnisaðstæður. Fór þessi akstur liðanna tveggja fram nær samhliða.
Hülkenberg setti besta hringinn á mýktu dekkjagerðinni frá Pirelli rétt undir hádegi. Fram að því hafði Sebastian Vettel á Red Bull átt besta tímann. Með sömu dekk voru Sergio Perez á Sauber og Daniel Ricciardo á Toro Rosso er þeir settu sína bestu tíma.
Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Bil | Hri. |
|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Hulkenberg | Force India | 1:22.608 | 112 | |
| 2. | Perez | Sauber | 1:22.648 | +0.040 | 85 |
| 3. | Vettel | Red Bull | 1:22.891 | +0.283 | 104 |
| 4. | Alonso | Ferrari | 1:23.180 | +0.572 | 87 |
| 5. | Ricciardo | Toro Rosso | 1:23.639 | +1.031 | 48 |
| 6. | Hamilton | McLaren | 1:23.806 | +1.198 | 120 |
| 7. | Rosberg | Mercedes | 1:24.555 | +1.947 | 82 |
| 8. | Bottas | Williams | 1:25.738 | +3.130 | 117 |
| 9. | Petrov | Caterham | 1:26.605 | +3.997 | 69 |
| 10. | Pic | Marussia | 1:27.343 | +4.735 | 108 |






