Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 23.2.2012
| 17:43
Williamsbíll í efsta sæti
Pastor Maldonado gladdi liðsmenn sína hjá Williams er hann setti besta brautartíma dagins við reynsluakstur 10 liða í Barcelona. Ofan í kaupið setti hann besta tíma vikunnar, á þriðja æfingadegi af fjórum.
Hröðu tímarnir sáu allir dagsins ljós fyrir hádegi eins og oftast. Síðdegis einbeittu ökumenn sér að löngum aksturslotum. Vitaly Petrov á Caterham var sá eini sem bætti besta hring sinn síðdegis.
Maldonado var með ofurmjúku Pirellidekkin undir bílnum á besta sprettinum.
Jean-Eric Vergne hjá Toro Rosso mun ekki leiðast að hafa ekið hraðar og hafnað ofar á lista yfir hröðustu hringi dagsins en Mark Webber á Red Bull og Felipe Massa á Ferrari.
Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Bil | Hri. |
|---|---|---|---|---|---|
| 1. | Maldonado | Williams | 1:22.391 | 106 | |
| 2. | Schumacher | Mercedes | 1:23.384 | +0.993 | 127 |
| 3. | Kobayashi | Sauber | 1:23.582 | +1.191 | 99 |
| 4. | Button | McLaren | 1:23.918 | +1.527 | 114 |
| 5. | Vergne | Toro Rosso | 1:24.433 | +2.042 | 78 |
| 6. | Webber | Red Bull | 1:24.771 | +2.380 | 97 |
| 7. | Massa | Ferrari | 1:24.771 | +2.380 | 84 |
| 8. | Di Resta | Force India | 1:25.646 | +3.255 | 83 |
| 9. | Glock | Marussia | 1:26.173 | +3.782 | 108 |
| 10. | Petrov | Caterham | 1:26.448 | +4.057 | 70 |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






