Mario Andretti, heimsmeistarinn fyrrverandi í formúlu-1, er á því að Fernando Alonso gæti freistast til að yfirgefa Ferrariliðið vegna getuleysis keppnisbílanna. Ferrari hefur átt erfitt uppdráttar allar götur frá því það vann síðast titil bílsmiða, eða frá 2008.
Alonso er nú á sinni fimmtu keppnistíð með Ferrari og varð að gera sér að góðu níunda sætið í síðasta móti, kappakstrinum í Barein. Liðsfélagi hans Kimi Räikkönen varð næstur á eftir í tíunda sæti en hann á heiðurinn af því að hafa fært liðinu síðasta titil ökumanna, árið 2007.
„Ferrari á ekki að vera í keppni um síðustu stigin sem útdeilt er. Það er hvorki gott fyrir Ferrari né formúlu-1,“ segir Andretti, sem varð heimsmeistari ökumanna árið 1978 á Lotusbíl. „Ferrari þarf að vera í toppslagnum. Þótt Mercedes sé mikilsvert merki þá er Ferrari af einhverjum ástæðum viðmiðunin í akstursíþróttum og formúlu-1. Þeir þurfa því að vera við toppinn og þeir vita það. Það sést að þeir eru óhressir með gang mála en ökumennirnir sitja á sér í gagnrýni sinni,“ segir Andretti.