Alonso sagður búinn að skrifa undir

Fernando Alonso hugsi á blaðamannafundi.
Fernando Alonso hugsi á blaðamannafundi. mbl.is/afp

Fernando Alonso hefur nú þegar skrifað undir samning um að keppa fyrir McLaren á næsta ári. Þessu heldur stjórnarformaður Mercedesliðsins, Niki Lauda, fram.

Lauda hefur aldrei verið feiminn við að hafa skoðanir á hlutunum og oft tekið stórt upp í sig. Hann hefur einhverjar aðrar heimildir úr herbúðum keppinautanna en liðsstjórinn Ron Dennis sem þráfaldlega neitar því að hafa samið um eitt eða neitt við Alonso.

Lauda fullyrðir það hins vegar umbúðalaust í spænska íþróttadagblaðinu Mundo Deportivo, að samningar séu komnir á milli Alonso og McLaren.

„Skrifað var undir samninginn á fimmtudag,“ hefur blaðið eftir Lauda. Hann segir Alonso hafa skrifað undir samning við Honda, sem sér McLaren fyrir vélum í bíla sína frá og með næsta ári.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert