Tímatökunni breytt

Sergio Perez (t.h.) skoðar brautina í Austin með liðsmanni hjá …
Sergio Perez (t.h.) skoðar brautina í Austin með liðsmanni hjá Force India. mbl.is/afp

Ákveðið hefur verið að breyta tímatökunni í bandaríska kappakstrinum í Austin í Texas á morgun vegna brottfalls tveggja liða úr keppni; Caterham og Marussia.

Í stað þess að sex bílar falli úr leik í hvorri fyrstu tveggja umferðanna falla fjórir út í fyrstu umferð og fjórir til viðbótar í annarri umferð.

Lokalotan verður hins vegar óbreytt er 10 fremstu bílarnir slást um 10 fremstu sætin á rásmarkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert