Fær 4,9 milljarða á tveimur árum

Fernando Alonso fær 4.900 milljónir í kaup á tveimur árum …
Fernando Alonso fær 4.900 milljónir í kaup á tveimur árum hjá McLaren. mbl.is/afp

Fernando Alonso er sagður við það að skrifa undir „stærsta ráðningarsamning í sögu formúlu-1“ er hann ræður sig til að keppa fyrir McLaren á næsta ári.

Spænska íþróttadagblaðið AS segir að Alonso fái 25 milljónir punda í aðra hönd fyrir að binda sig hjá McLaren næstu tvö árin. Jafngildir það 4,9 milljörðum króna. Þá hafi hann valkost á að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.

Til samanburðar verður árskaup Alonso næstum tvöfalt hærra en Nico Rosberg hjá Mercedes samdi um í sumar. Hermt er að eini ókláraði liðurinn í nýjum samningi Lewis Hamilton hjá Mercedes. Hann er sagður krefjast greiðslna sem fara langleiðina í að jafna laun Alonso.

Fernando Alonso í tímatökunni í Sao Paulo í Brasilíu um …
Fernando Alonso í tímatökunni í Sao Paulo í Brasilíu um helgina. mbl.is/afp
Alonso á ferð á Ferrarifák.
Alonso á ferð á Ferrarifák.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert