Valtteri Bottas segist ganga til leiks í lokamótinu í Abu Dhabi með það sem markmið að komast fram úr Fernando Alonso og Sebastian Vettel í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna.
Gangi það eftir yrði Bottas í fjórða sæti, á eftir Mercedesmönnunum Lewis Hamilton og Ncio Rosberg og Daniel Ricciardo hjá Red Bull. Hann er sem stendur aðeins einu stigi á eftir Alonso og þremur á eftir Vettel.
Bottas og liðsfélagi hans Felipe Massa þurfa einnig að verja 44 stiga forskot Williams á Ferrari um þriðja sætið í keppni bílsmiða, á eftir Mercedes og Red Bull.