Sérstakur kveðjuhjálmur

Fernando Alonso mætir til leiks í kappakstrinum í Abu Dhabi um helgina með sérstakan  kveðjuhjálm, en kappaksturinn verður sá síðasti af hans hálfu fyrir Ferrari.

„Ég skrýðist hjálmi með mynd af dekkjastoppi í ár á annarri hliðinni, ítalska fánanum í miðjunni og eiginhandaráritun allra liðsmanna á hinni hliðinni,“ segir Alonso um hjálminn góða.

„Ég sagði mannskapnum í morgun að þetta yrði síðasta helgin sem ég stykki um borð í Ferraribíl og að ég vildi þess vegna hafa þá alla með því þeir eru partur af þeirri frábæru lífsreynslu sem dvölin hjá Ferrari hefur verið. Ég vildi hafa þá meðferðis í síðasta kappakstrinum.  Ég ber nöfn liðsfélaga minna stoltur í lokamótinu,“ segir Alonso. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert