Williams birtir fyrstu myndina

2015 bíll Williams er með nýju nefi.
2015 bíll Williams er með nýju nefi.

Williamsliðið varð í morgun fyrst keppnisliða formúlu-1 til að birta mynd af 2015-bíl.Sem í fyrra verður hann knúinn Mercedesvél.

Mynd er og birt af bílnum á forsíðu formúluritsins F1 Racing, sem út kemur á morgun, fimmtudag.

Williams brúkaði Twittersíðu sína í morgun til að verða á undan tímaritinu en auglýsir það í leiðinni því fjallað er um Williams og nýjan bíl þess í blaðinu.

Svo sem sjá má er trjónan breytt frá í fyrra en í samræmið við nýja tæknireglu er hún styttri nú.

Ökumannapar Williams í ár er óbreytt frá í fyrra en þeir Felipe Massa og Valtteri Bottas keppa áfram fyrir liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert