Bottas orðaður við Ferrari 2017

Valtteri Bottas.
Valtteri Bottas. mbl.is/afp

Ferraristjórinn Maurizio Arrivabene segist ekki vilja útiloka að Valtteri Bottas hjá Williams verði ráðin til að keppa þar á bæ frá og með 2017.

Meðal flugufregna í formúlu-1 er að Bottas hafi þegar undirritað skjal við Ferrari sem sé nokkurs konar skuldbinding um að hann muni semja við liðið.

Heimildarmenn í Finnlandi gefa hins vegar lítið fyrir að Bottas fari til Ferrari við vertíðarlok, miklu nær sé að bíða verði með það til 2017.

Arrivabene gaf til kynna fyrir helgi, að Räikkönen héldi sæti út næsta ár héldi hann uppteknum hætti og skilaði eins góðum árangri og í síðustu mótum. „Árangurinn er eitt og þar fyrir utan líkar mér mjög vel við hvernig þeir Seb [astian Vettel] vinna saman. Þeir ferðast jafnvel saman,“ segir Ferraristjórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert