Tvöfalt hjá Mercedes í Barcelona

Nico Rosberg
Nico Rosberg AFP

Nico Rosberg hjá Mercedes var að koma fyrstur í mark í Barcelonakappakstrinum. Annar varð liðsfélagi hans Lewis Hamilton og þriðji Sebastian Vettel hjá Ferrari.

Rosberg var fyrstur á ráspól og hélt forystunni alla leiðina og vann hann þar með sinn fyrsta sigur á árinu og í fyrsta sinn sem hann sigrar í Barcelona.

Það var alveg sama hvað Hamilton reyndi í dag, hann komst hreinlega ekki fram úr Roseberg. 

Finnarnir Valtteri Bottas hjá Williams og Kimi Räikkönen hjá Ferrari háðu harða baráttu um fjórða sætið og þar hafði Bottas betur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert