Nýtt útlit hjá Marussia

Blár litur bætist á bíla Marussia og verður mest áberandi …
Blár litur bætist á bíla Marussia og verður mest áberandi á þeim.

Útlit keppnisbíla Manor Marussia hefur verið breytt fyrir breska kappaksturinn og það sem eftir er vertíðar.

Ástæða þessa er að liðið hefur orðið sér úti um öflugan styrktaraðila í gámafélagi að nafni Flex Box.

Hingað til hafa bílar Marussia verið rauðir og hvítir en héðan í frá verður blár einkennislitur gámafélagins fyrirferðamestur á þeim.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert