Williams heldur í Massa og Bottas

Felipe Massa ræðir við blaðamenn í Hungaroring við Búdapest.
Felipe Massa ræðir við blaðamenn í Hungaroring við Búdapest. mbl.is/afp

Óbreytt liðsskipan verður hjá Williamsliðinu á næsta ári, 2016, því liðið hefur framlengt ráðningarsamninga beggja ökumannanna, Felipe Massa og Valtteri Bottas.

Massa er á öðru ári með Williams en áður ók hann um árabil fyrir Ferrari. Næsta ár verður hans 14. í formúlu-1.

Bottas er á sinni þriðju keppnistíð í formúlu-1 og þreytti frumraun sína með Williams, árið 2013, eftir eitt ár sem reynsluökumaður. Verður næsta ár því hanns fjórða í röð hjá enska liðinu.


 

Valtteri Bottas á ferð á Williamsbílnum í Spa-Francorchamps.
Valtteri Bottas á ferð á Williamsbílnum í Spa-Francorchamps. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert