Betri á alla vegu

Stoffel Vandoorne á McLarenbílnum.
Stoffel Vandoorne á McLarenbílnum. AFP

Þriðji ökumaður McLaren, Stoffel Vandoorne, segir eftir æfingar og reynsluakstur í Barcelona í vikunni, að keppnisbíll liðsins hafi tekið miklum breytingum frá í öðru móti ársins, í Barein.

Vandoorne segir bíllinn betri „á alla kanta“ og vængpressan mun meiri en þegar hann keppti í Barein í stað Fernando Alonso sem slasaðist í fyrsta móti ársins, í Melbourne.

Alls lagði Vandoorne að baki 108 hringi og settu næstbesta tímann á seinni degi æfinganna. Hann sagði framfarir bílsins í góðum farvegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert