Dramatík í Singapúr

Nico Rosberg á leið til fyrsta sætis í tímatökunni í …
Nico Rosberg á leið til fyrsta sætis í tímatökunni í Singapúr. AFP

Nico Rosberg hjá Mercedes hreppti ráspól kappakstursins í Singapúr en keppnin er eftirminnileg sakir þessa, að í fyrstu lotu féll Sebastian Vettel hjá Ferrari úr leik.

Annar varð Daniel Ricciardo hjá Red Bull og þriðji Lewis Hamilton hjá Mercedes.

Í sætum fjögur til tíu urðu - í þessari röð - Max Verstappen hjá Red Bull,  Kimi Räikkönen hjá Ferrari, Carlos Sainz og Daniil Kvyat hjá Toro Rosso, Nico Hülkenberg hjá Force India, Fernando Alonso hjá McLaren og Sergio Perez hjá Force India.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert