Ljósblátt fyrir Toro Rosso

Þannig er sagt að bílar Toro Rosso verði.
Þannig er sagt að bílar Toro Rosso verði.

Fregnir herma að bílar Toro Rosso verði ljósbláir á komandi keppnistíð þó ekki hafi það verið beinlínis staðfest af liðinu.

Hafa í netheimum jafnvel birst myndir af bíl í nýju litunum þótt ekki sé þar um að ræða komandi keppnisbíl.

Toro Rosso hefur brúkað sömu liti á bílum sínum í áratug en nú mun ætlunin að breyta því. Er nýi liturinn sóttur í dósir sem brúkaðar eru undir sykurlausa Red Bull drykkinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert