Óljósar myndir af bíl Mercedes

Mercedesliðið birti í morgun myndir sem eiga sýna 2017-bíl þess þótt þær sýni ósköp lítið í raun og veru. Bíllinn verður annars frumsýndur í Silverstone á morgun.

F1 W08 Hybrid er hið formlega heiti á bílnum sem þeir Lewis Hamilton og Valtteri Bottas munu frumaka eftir að hann hefur veið sviptur hulum. Þar verður þó ekki um reynsluakstur að ræða heldur vegna myndatöku í kynningarskyni.

Myndirnar leiða í ljós að framtrjóna Mercedes er rúnnaðri en „þumal“-nef bíla Williams, Sauber og Renault. Þá sýna þær ögn af framvængnum, vindskeiðum og vélarhlífinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert