Æfingunni aflýst

Seinni æfingu dagsins í Sjanghæ í Kína hefur verið aflýst. Vegna veðurfars var aldrei unnt að hefja hana.

Aðstæður voru ágætar í og við brautina en vegna lágskýja var ekki unnt að fljúga og lenda þyrlu við sjúkrahús kappakstursins sem er í 38 kílómetra fjarlægð. Af þeim sökum var ökumönnum aldrei hleypt út í brautina. 

Þar sem fyrri æfingin fór að langmestu leyti forgörðum mæta ökumennirnir til leiks á þriðju æfinguna á morgun með nánast ekkert til að byggja framhaldið á. Gangi hún ekki eðlilega fyrir sig renna tímatökurnar upp við mikla óvissu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert