Vandoorne áfram hjá McLaren

McLaren hefur formlega staðfest að Stoffel Vandoorne verði áfram ökumaður liðsins á næsta ári, 2018.

Besti árangur Vandoorne í keppni í ár er tíunda sætið í ungverska kappakstrinum. Hann verður á heimavelli í Spa-Franacorchamps í Belgíu, um helgina.

Hann segist fagna áframhalds ráðningunni en með því segist hann gea einbeitt sér að starfinu og ná sem bestu út úr keppnisbílnum í samstarfi við tæknimenn sína.

Enn sem komið er  liggur ekki fyrir hvort Fernando Alonso framlengi dvöl sína hjá McLaren eða hætti við vertíðarlok. Er þriggja ára samningur hans að renna út. Hefur Alonso gefið til kynna að hann muni ákveða framhaldið annað hvort í september eða október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert