Vettel hjá Ferrari út 2020

Ekki þarf að velta vöngum frekar yfir framtíðar vinnustað Sebastians Vettels því staðfest var fyrir stundu að hann myndi keppa fyrir Ferrari út árið 2020.

Vettel sagði síðast í gær að honum lægi ekkert á í samningamálum og vart yrði nokkuð að frétta af málinu fyrr en í næsta móti, í Monza á Ítalíu. Hefur hann undanfarnar vikur og mánuði freistað þess að fá aðeins framlengingu til eins árs, en Ferrari hefur haft sitt fram.

Ferrari lagði í júlí fyrir hann samning til þriggja ára sem fól í sér að hann fær jafnvirði 15 millj­arða íslenskra króna samtals í kaup árin þrjú, 2018, 2019 og 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert