Räikkönen fljótastur á lokaæfingunni

Kimi Räikkönen hjá Ferrari ók hraðast á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Malasíu og liðsfélagi hans Sebastian Vettel var næstfljótastur, en sá lenti þó í vanda á æfingunni.

Þriðja besta tímann átti Daniel Ricciardo hjá Red Bull en í sætum fjögur til tíu - í þessari röð - urðu Valtteri Bottas og Lewis Hamilton hjá Mercedes, Max Verstappen hjá Red Bull, Sergio Pererz á Force India, Felipe Massa á Williams, Esteban Ocon á Force India og Stoffel Vandoorne á McLaren.

Bilun virtist koma upp í bíl Vettels því hann hægði skyndilega ferðina og ók inn að bílskúr er vel var liðið  á æfinguna  og kom þaðan ekki aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert