Verstappen framlengir til 2020

Max Verstappen sinnir unnendum formúlu-1 í Austin í dag.
Max Verstappen sinnir unnendum formúlu-1 í Austin í dag. AFP

Max Verstappen hefur framlengt ráðningarsamning sinn hjá Red Bull út árið 2020, að því er tilkynnt var af hálfu liðsins í Austin í Bandaríkjunum í dag.

Verstappen réðist til Red Bull er keppnistíðin 2014 var hálfnuð eftir að hafa vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína í formúlu-3. Þreytti hann frumraun sína í keppni með Toro Rosso í byrjun vertíðar 2015.

Hann fékk svo stöðuhækkun eftir nokkur mót 2016 og settur undir stýri hjá aðalliði Red Bull og  hafði sætaskipti við Daniil Kvyat. Vann hann svo jómfrúarsigur sinn í formúlu-1 í Barcelona á keppnistíðinni.

Verstappen bætti öðrum sigri við er hann drottnaði í Malasíukappakstrinum á dögunum. Hann hefur að undanförnu verið orðaður við bæði Mercedes og Ferrari fyrir árið 2019 en hefur kosið að framlengja samning sinn við Red Bull.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert