Bolt ræsir ökumenn af stað

Usain Bolt stillir sér upp með japönskum geishum á góðgerðarsamkomu …
Usain Bolt stillir sér upp með japönskum geishum á góðgerðarsamkomu í Kyoto í síðasta mánuði. AFP

Áttfaldi heimsmeistarinn í spretthlaupum, Usain Bolt, mun ræsa keppendur af stað á upphitunarhring bandaríska kappakstursins, sem fram fer í Austin í Texas á morgun.

Verður þetta liður í hátíðarhöldum á kappaksturshelginni í Austin. Bolt mun spranga um rásmarkssvæðið fyrir kappaksturinn ásamt hinum fræga tónlistarmanni Stevie Wonder.

Wonder mun koma fram á tónleikum við brautina en meðal hljómsveita sem fram koma er Prairie View A&M Band. Klappstýrur Dallas Cowboys munu drepa tímann milli atriða.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert