Lewis Hamilton á Mercedes ók hraðast á öllum brautarköflunum þremur á lokaæfingunni fyrir tímatökuna í Abu Dhabi. Stóðst honum enginn snúning.
Næst hraðast fór liðsfélagi hans Valtteri Bottas og þriðja besta hringinn átti Kimi Räikkönen á Ferrari, sem var 17 þúsundustu úr sekúndu fljótari en liðsfélagi hans Sebastian Vettel.
Mercedes átti tvo fyrstu bíla, Ferrari þá tvo næstu og í sætum fimm og sex urðu Red Bull félagarnir Daniel Ricciardo og Max Verstappen.
Í sætum sjö til tíu - í þessari röð - urðu svo Fernando Alonso og Stoffel Vandoorne á McLaren, Carlos Sainz á Renault og Sergio Perez á Force India.