Eiður Smári fær hæstu einkunn hjá Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen.

Eiður Smári Guðjohnsen. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Evrópu- og Spánarmeistaraliðs Barcelona, fær hæstu einkunn sérfræðinga fréttavefjar Sky fyrir framlag sitt í 2:0-sigri liðsins á útivelli gegn Levski Sofia í Búlgaríu.

Eiður fær 8 í einkunn og til samanburðar fær Brasilíumaðurinn Ronaldinho 6 í einkunn og Ludovic Giuly, sem skoraði fyrsta mark leiksins, fær 7 í einkunn. Með sigrinum tekst Barcelona að halda í vonina um áframhaldandi þátttöku í Meistaradeild Evrópu en liðið mætir Werder Bremen á Spáni í lokaumferð A-riðils. Chelsea er efst í riðlinum með 10 stig og leikur gegn Levski á heimavelli í lokaumferðinni.

Werder Bremen er með 10 stig og nægir jafntefli gegn Barcelona í lokaleiknum en Evrópumeistararnir eru með 8 stig í þriðja sæti riðilsins.

Einkunnir leikmanna Barcelona á Sky eftir leikinn gegn Levski í Búlgaríu eru þannig:

Víctor Valdés 7, Carles Puyol 6, Rafael Marquez 6, Silvinho 5, Gianluca Zambrotta 7, Thiago Motta 6, Deco 7, Andres Iniesta 7, Ronaldinho 6, Ludovic Giuly 7, Eiður Smári Guðjohnsen 8.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is