Allbäck og Rosenberg frammi gegn Íslendingum

Olof Mellberg er á sínum stað í vörn Svía í …
Olof Mellberg er á sínum stað í vörn Svía í kvöld. Reuters

Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Svía í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslendingum á Råsunda-leikvanginum í Stokkhólmi í kvöld. Það verða Marcus Allbäck og Markus Rosenberg sem leika í fremstu víglínu en Zlatan Ibrahimovic verður áfram á varamannabekknum.

Byrjunarliðið er þannig skipað: Andreas Isaksson - Niclas Alexandersson, Olof Mellberg, Petter Hansson, Mikael Nilsson - Christian Wilhelmsson, Tobias Linderoth, Anders Svensson, Fredrik Ljungberg - Markus Rosenberg, Marcus Allbäck.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert