ÍBV vann Reyni 10:0

Fyrsti leikur 32ja liða úrslita VISA bikarkeppninnar fór fram á Hásteinsvellinum í Eyjum í kvöld þegar ÍBV tók á móti Reyni frá Sandgerði. Heimamenn unnu leikinn 10:0 og er þetta næst stærsti sigur félagsins frá upphafi. Stefán Björn Hauksson skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV sem eru jafnframt fyrstu mörk hans fyrir félagið.

Síðast þegar þessi tvö lið mættust á sama stað fyrir rúmum mánuði í 1. deild Íslandsmótsins urðu lokatölur 1:1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert