Meistararnir mæta Þrótti

Bikarmeistarar Keflavíkur mæta Þrótturum í Laugardalnum í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar en dregið var í hádeginu. Kópavogsliðin Breiðablik og HK mætast, KR fær Val í heimsókn og Skagamenn taka á móti Víkingum. Fylkir leikur við Þór á akureyri, Haukar taka á móti Fram, FH fer til Eyja og Fjarðarbyggð mætir Fjölni. Leikið verður 10. og 11. júlí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert