Eiður Smári í liði Börsunga

Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona í fyrsta sinn á …
Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona í fyrsta sinn á leiktíðinni. Reuters

Byrjunarlið Rangers og Barcelona, sem eigast við í Meistaradeildinni í Glasgow í kvöld, hafa verið upp gefin upp og það fór eins reiknað hafði verið með og Frank Rijkaard, þjálfari Börsunga, hafði sagt. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Börsunga og leikur í miðjunni í staðinn fyrir Deco.

Byrjunarlið Barcelona: Valdes, Milito, Puyol, Thuram, Abidal, Xavi, Iniesta, Eiður Smári, Ronaldinho, Henry, Messi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert