Hermann knattspyrnumaður ársins 2007

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hermann Hreiðarsson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, var í kvöld valinn knattspyrnumaður ársins 2007. Það er Knattspyrnusamband Íslands sem stendur að kjörinu. 

Eiður Smári Guðjohnsen leikmaður Barcelona á Spáni varð annar í kjörinu og Grétar Rafn Steinsson sem leikur með AZ Alkmaar í Hollandi varð þriðji. 

Til og með 1996 var útnefndur knattspyrnumaður ársins, og náði útnefningin þá til beggja kynja og er Ásta B. Gunnlaugsdóttir eina konan sem fékk þá viðurkenningu.

Árið 1997 varð breyting á og eru nú útnefnd knattspyrnumaður og knattspyrnukona ársins. Knattspyrnufólk ársins var áður útnefnt af stjórn KSÍ, en árið 2004 tók Leikmannaval KSÍ við. Í leikmannavali KSÍ eru aðallega fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni.

Þeir sem hafa fengið þessa viðurkenningu frá árinu 1973 eru:

2006     Eiður Smári Guðjohnsen     Barcelona
2005     Eiður Smári Guðjohnsen     Chelsea
2004     Eiður Smári Guðjohnsen     Chelsea
2003     Eiður Smári Guðjohnsen     Chelsea
2002     Rúnar Kristinsson     Lokeren
2001     Eiður Smári Guðjohnsen     Chelsea
2000     Hermann Hreiðarsson     Ipswich
1999     Eyjólfur Sverrisson     Hertha Berlín
1998     Eyjólfur Sverrisson     Hertha Berlín
1997     Hermann Hreiðarsson     Crystal Palace
1996     Ólafur Adolfsson     ÍA
1995     Birkir Kristinsson     Fram
1994     Ásta B. Gunnlaugsdóttir     Breiðablik
1993     Sigurður Jónsson     ÍA
1992     Arnar Gunnlaugsson     ÍA
1991     Eyjólfur Sverrisson     Stuttgart
1990     Bjarni Sigurðsson     Valur
1989     Ólafur Þórðarson     Brann
1988     Sævar Jónsson     Valur
1987     Pétur Ormslev     Fram
1986     Guðmundur Torfason     Fram
1985     Guðmundur Þorbjörnsson     Valur
1984     Bjarni Sigurðsson     ÍA
1983     Sigurður Jónsson     ÍA
1982     Þorsteinn Bjarnason     Keflavík
1981     Guðmundur Baldursson     Fram
1980     Matthías Hallgrímsson     ÍA
1979     Marteinn Geirsson     Fram
1978     Karl Þórðarson     ÍA
1977     Gísli Torfason     ÍBK
1976     Jón Pétursson     Fram
1975     Árni Stefánsson     Fram
1974     Jóhannes Eðvaldsson     Valur
1973     Guðni Kjartansson     Keflavík
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert