Íslenska karlalandsliðið er í 90. sæti á heimslista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í dag og hefur fallið um eitt sæti síðan í nóvember.
Ísland var í 89. sæti en fellur um eitt sæti eftir ósigurinn gegn Dönum á Parken þann 21. nóvember. Staðan er þar með þremur sætum betri en um síðustu áramót en í desember 2006 var íslenska landsliðið í 93. sæti.
Staða efstu þjóða er óbreytt en þessar skipa efstu 20 sætin:
1. Argentína
2. Brasilía
3. Ítalía
4. Spánn
5. Þýskaland
6. Tékkland
7. Frakkland
8. Portúgal
9. Holland
10. Króatía
11. Grikkland
12. England
13. Rúmenía
14. Skotland
15. Mexíkó
16. Tyrkland
17. Kólumbía
18. Búlgaría
19. Bandaríkin
20. Nígería
Riðill Íslands í HM:
9. Holland
14. Skotland
29. Noregur
58. Makedónía
90. Ísland
Norðurlöndin:
24. Svíþjóð
29. Noregur
31. Danmörk
36. Finnland
90. Ísland
194. Færeyjar