Margrét Lára íþróttamaður ársins

Þorsteinn Gunnarsson formaður SÍ afhendir Margréti Láru verðlaunagripinn stórbrotna. stækka

Þorsteinn Gunnarsson formaður SÍ afhendir Margréti Láru verðlaunagripinn stórbrotna. Jón Svavarsson

Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona úr Val var í kvöld útnefnd íþróttamaður ársins 2007 af Samtökum íþróttafréttamanna.

Margrét Lára, sem er 21 árs og fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, er fjórða konan sem hlýtur þessa útnefningu á 52 árum. Hún setti nýtt markamet á Íslandsmótinu þegar hún skoraði 38 mörk fyrir Val, sló markamet A-landsliðsins og skoraði í sigurleikjum Íslands gegn tveimur af tíu bestu landsliðum heims, Frakklandi og Kína. Þá lék hún stórt hlutverk með Val sem náði langt í Evrópukeppninni.

Röð tíu efstu í kjörinu á íþróttamanni ársins varð sem hér segir:

1. Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2. Ólafur Stefánsson, handknattleikur
3. Ragna Ingólfsdóttir, badminton
4. Jón Arnór Stefánsson, körfuknattleikur
5. Birgir Leifur Hafþórsson, golf
6. Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleikur
7. Örn Arnarson, sund
8. Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna
9. Snorri Steinn Guðjónsson, handknattleikur
10. Ragnheiður Ragnarsdóttir, sund

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is