Eiður Smári ekki valinn í hópinn

Eiður Smári Guðjohnsen spilar ekki gegn Valencia á morgun.
Eiður Smári Guðjohnsen spilar ekki gegn Valencia á morgun. AP

Eiður Smári Guðjohnsen var ekki valinn í 16 manna leikmannahóp Barcelona fyrir leik liðsins gegn Valencia í undanúrslitum bikarkeppninnar en liðin mætast í fyrri leiknum á Camp Nou annað kvöld.

Aðeins er heimilt að vera með 16 menn á leikskýrslu í bikarnum og frá leiknum við Levante um síðustu helgi detta Eiður Smári, Ronaldinho, Giovani og Sylvinho út og inn koma Thierry Henry og Deco sem voru hvíldir í leiknum gegn Levante.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert