Barcelona hyggst selja tíu leikmenn

Eiður Smári Guðjohnsen og Ronaldinho eru tveir af þeim leikmönnum …
Eiður Smári Guðjohnsen og Ronaldinho eru tveir af þeim leikmönnum sem spáð er að fari frá Barcelona í sumar. Reuters

Miklar sumarhreingerningar eru fram undan hjá liði Barcelona í sumar enda blasir við Börsungum sú nöturlega staðreynd að þeir standa uppi með engan titil í höndunum annað árið í röð. Spænska blaðið AS spáir því að tíu leikmenn Barcelona verði seldir í sumar og þeirra á meðal eru: Eiður Smári Guðjohnsen, Thierry Henry og Ronaldinho.

AS hefur teiknað upp lista leikmanna sem það telur víst að fari frá Katalóníuliðinu í sumar og efsti maður á þessum lista er Brasilíumaðurinn Ronaldinho sem flestir spá að fari til AC Milan en hann hefur einnig verið orðaður við Inter og Manchester City.

Tíu manna listinn er annars þessi:

Ronaldinho

Thierry Henry

Deco

Lilian Thuram

Edmilson

Rafael Marguez

Eiður Smári

Gianluca Zambrotta

Santi Ezquerro

Sylvinho

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert