Ólafur sleit hásin

Ólafur Jóhannesson stækka

Ólafur Jóhannesson mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu, varð fyrir því óláni í gær að slíta hásin í fæti og gengst hann undir aðgerð í dag.

Ólafur var í skólaheimsókn í Korpuskóla í Grafarvogi í gær ásamt Bjarna Sigurðssyni markvarðarþjálfara þar sem þeir voru að breiða út ,,fagnaðarerindið“. Ólafur brá á leik með 10 ára krökkum í skólanum en ekki vildi betur til en hásinin gaf sig. Ólafur mun því stýra íslenska landsliðinu í leiknum við Walesverja með hækjur og væntanlega verður meira að gera hjá aðstoðarmanni hans, Pétri Péturssyni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is