Ásmundur: Núna förum við alla leið

Gunnar Már Guðmundsson og Pétur Georg Markan fagna marki þess síðarnefnda í dag. stækka

Gunnar Már Guðmundsson og Pétur Georg Markan fagna marki þess síðarnefnda í dag. mbl.is/Eggert

„Það hefði auðvitað verið allt í lagi að vinna þetta með meira sannfærandi hætti en þetta eru skemmtilegustu sigrarnir. Þetta gefur okkur mikið upp á framhaldið að gera,“ sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir dramatískan 4:3-sigur á Fylki í VISA-bikarnum í knattspyrnu í dag.

„Það sem ég er ánægðastur með er karakterinn sem liðið sýndi eftir að hafa lent undir og líka þegar við fengum á okkur mjög ódýrt jöfnunarmark. Ég var farinn að hugleiða framlenginguna en það var virkilega sætt að klára þetta svona,“ sagði Ásmundur.

Þetta er annað árið í röð sem Fjölnir kemst í úrslitaleikinn og því má með sanni segja að Fjölnisliðið sé „bikarlið.“

„Já, og núna förum við alla leið,“ sagði Ásmundur.

„Við höfum verið hinum megin við borðið í síðustu leikjum og fengið á okkur mörk í lokin en mér fannst menn koma með gott hugarfar í þennan leik og það skóp sigurinn,“ bætti hann við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar


finnur.is