Zidane sér eftir skallanum

Brotið fræga. Loks viðurkennir Zidane að hann sjái eftir öllu …
Brotið fræga. Loks viðurkennir Zidane að hann sjái eftir öllu saman. Reuters

Í næstu viku kemur út í Frakklandi bók um knattspyrnugoðið Zinedine Zidane þar sem hann í fyrsta skipti viðurkennir að hann skammist sín og sjái eftir hinu fræga atviki á HM 2006 þegar hann skallaði Marco Materazzi í leik Frakka og Ítala.

Hefur goðið verið þögull sem gröfin um það atvik og reyndar feril sinn allan að mestu síðan hann hætti knattspyrnuiðkun en andartakið í leiknum gegn Ítalíu markaði einmitt síðustu andartök hans í atvinnumennsku.

Engin tilviljun þykir að eftir að Zidane hætti hefur franska landsliðið í knattspyrnu varla þótt svipur hjá sjón frá því sem áður var.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert