Ísland á EM 2009

Íslenska liðið fagnar marki Dóru Maríu Lárusdóttur gegn Írum í kvöld. stækka

Íslenska liðið fagnar marki Dóru Maríu Lárusdóttur gegn Írum í kvöld. mbl.is/Golli

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sigraði Íra 3:0 á Laugardalsvelli í kvöld og tryggði sér þar með sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Finnlandi á næsta ári.

Þetta er í fyrsta sinn sem A-landslið í knattspyrnu kemst á úrslit á stórmóti og er þetta því sögulegur áfangi í íslenskri íþróttasögu.  
Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

Dóra María Lárusdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu. Staðan var 1:0 í hálfleik. Margrét Lára Viðarsdóttir bætti við öðru marki á 60. mínútu og Dóra María bætti við þriðja markinu á 69. mínútu.

Fyrri leiknum lauk með 1:1-jafntefli.

Byrjunarlið Íslands: María Björg Ágústsdóttir - Ásta Árnadóttir, Katrín Jónsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir - Dóra Stefánsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Edda Garðarsdóttir - Dóra María Lárusdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir.

Byrjunarlið Írlands: Emma Byrne - Alisha Moran, Meabh De Burca, Niamh Fahey, Yvonne Tracy, Jemma O'Connor, Ciara Grant, Aine O'Gorman, Mary Therese McDonnell, Michelle O'Brien, Stephanie Curtis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is