Ronaldo segist þurfa að létta sig

Ronaldo dregur inn magann þann 12. desember, er hann gekk …
Ronaldo dregur inn magann þann 12. desember, er hann gekk til liðs við Corinthians, sem er annað vinsælasta félagið í Brasilíu. Hann segist þurfa að losna við 5-6 kíló. Reuters

Ronaldo hinn brasilíski, sem nýlega gekk til liðs við Corinthians í heimalandi sínu, segist þurfa að létta sig um nokkur kíló áður en hann byrjar að spila með liðinu.

„Ég þarf að losna við fimm til sex kíló á undirbúningstímabilinu. Fólk ýkir um of um leið og það sér einhverja breytingu á líkama mínum, en ég er vissulega of þungur. Hinsvegar er það alveg eðlilegt, þar sem ég hef lítið sem ekkert hreyft mig undanfarið og er bara nýbyrjaður að æfa að nýju,“ sagði Ronaldo, sem er að ná sér eftir erfið hnémeiðsli sem hann varð fyrir hjá AC Milan.

Verður gaman að sjá hvort Ronaldo, sem er þrefaldur knattspyrnumaður ársins hjá FIFA, mun finna töframáttinn í skónum að nýju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert