Beckham meiddur í rassinum

Beckham skoraði í gær, en meiddi sig í rassinum.
Beckham skoraði í gær, en meiddi sig í rassinum. Reuters

David Beckham, sem skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu í gær í 1:1 jafntefli gegn Genúa, fór út af á 71. mínútu vegna meiðsla í afturenda, en vonar að þau séu ekki alvarleg.

„Þetta eru meiðsli í rasskinnunum (abductor). Við sjáum til hvernig þetta verður á morgun. Þetta er vont, en vonandi verð ég klár fyrir næstu helgi,“ sagði Beckham.

Mark Beckham var sérlega vel útfært, en það má sjá hér:

http://www.tribuntv.com/ac-milan-vs-genoa-1-1-highlights-and-goals-news2552.html

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert