Sex sigrar hjá Ólafi í 14 leikjum

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu. mbl.is/Brynjar Gauti

Ólafur Jóhannesson hefur nú stjórnað íslenska landsliðinu í knattspyrnu í 14 leikjum eftir sigurinn á Liechteinstein á La Manga á Spáni í dag.

Ólafur tók við þjálfun landsliðsins af Eyjólfi Sverrissyni í nóvember 2007 og fyrsti leikur liðsins undir hans stjórn var gegn Dönum á Parken í nóvember 2007 þar sem Danir höfðu betur, 3:0. Í leikjunum 14 sem Ólafur hefur stýrt landsliðinu hafa Íslendingar unnið 6 leiki,  tapað 6 og gert 2 jafntefli.

Sigurleikirnir:

3:0 Færeyjar
2:1 Slóvakía
1:0 Malta
2:0 Armenía
1:0 Makedónía
2:0 Liechtenstein

Tapleikirnir:

3:0 Danmörk
1:0 Wales
2:0 Hvíta-Rússland
1:0 Malta
2:1 Skotland
2:0 Holland

Jafnteflin:

1:1 Azerbaídsjan
2:2 Noregur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert