Varnarmaðurinn Höskuldur Eiríksson er genginn til liðs við nýkrýnda Reykjavíkurmeistara KR. Að því er fram kemur á vef stuðningsmanna KR, krreykjavik.is, hefur Höskuldur skrifað undir þriggja ára samning við vesturbæjarliðið.
Höskuldur var í herbúðum Íslandsmeistara FH á síðustu leiktíð en fékk sig lausan undan samning við Hafnarfjarðarliðið í síðasta mánuði en samningur hans átti að renna út í lok ársins. Hann lék 7 leiki með FH-ingum í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð.
Höskuldur, sem er 28 ára gamall, þekkir vel til hjá KR-ingum en hann lék með öllum yngri flokkum félagsins og lék 7 leiki með meistaraflokki sumarið 2001. Hann fór frá KR til Víkings og samdi síðan við norska úrvalsdeildarliðið Viking Stavanger en staldraði stutt við þar en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum.