Sigurlíkur Íslands 17,54%

Íslenska landsliðið mun vonandi standa saman á knattspyrnuvellinum á morgun og ekki láta hrakspár hafa ... stækka

Íslenska landsliðið mun vonandi standa saman á knattspyrnuvellinum á morgun og ekki láta hrakspár hafa áhrif á frammistöðu sína. Morgunblaðið/ Golli

Ef tekið er mark á veðbönkum í Bretlandi, mun íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu ekki ríða feitum hesti frá viðureign þess gegn Skotum á morgun, en sigurlíkur liðsins eru aðeins 17,54%.

Skotar hafa leikið þrjá leiki í undankeppni HM: Tapað einum, sigrað einn og gert eitt jafntefli. Ísland hefur leikið fjóra leiki: Tapað tveimur, sigrað einn og gert eitt jafntefli.

Líkurnar á sigri Skota hafa því verið reiknaðar út og er stuðullinn 1.54, eða 64,94%

Líkurnar á jafntefli eru 28,57% en líkurnar á sigri Íslands í leiknum eru sagðar 17,54% sem áður segir.

Hvort íslenska liðið taki mark á slíkum spám er þó óvíst, enda getur allt gerst á knattspyrnuvellinum, hvað sem veðbankarnir segja.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is