„Ekki fengið tækifæri sem ég á skilið“

Theódór Elmar Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu. stækka

Theódór Elmar Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu. AP

Morgunblaðið Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is
„Ég mun ekki gefa kost á mér í bili. Ekki miðað við óbreytta stöðu alla vega,“ sagði knattspyrnumaðurinn Theódór Elmar Bjarnason í samtali við Morgunblaðið í gær en hann hefur ákveðið að draga sig úr íslenska landsliðshópnum sem hélt áleiðis til Makedóníu í gær, vegna skorts á tækifærum með liðinu.

Elmar var einn þeirra 22 sem valdir voru fyrir leikina við Holland og Makedóníu en var svo ekki í 18 manna leikmannahópnum sem Ólafur Jóhannesson þjálfari valdi fyrir Hollandsleikinn á laugardaginn. Hann hefur einungis leikið 50 mínútur af þeim 540 sem Ísland hefur leikið í undankeppni HM til þessa.

„Manni finnst þetta skrýtið í því ljósi að það er verið að tala um að liðið þurfi að koma framar á völlinn en svo eru bakverðir notaðir á köntunum. Með fullri virðingu fyrir þeim, því þeir eru góðir leikmenn í sinni stöðu, þá finnst manni þetta undarlegt,“ sagði Elmar sem er kantmaður og á mála hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Lyn.

Sjá ítarlegra viðtal við Theódór í Morgunblaðinu í dag.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is