KA lagði toppliðið að velli

KA-menn hafa aðeins fengið eitt mark á sig í sumar …
KA-menn hafa aðeins fengið eitt mark á sig í sumar en skorað fjögur. mbl.is/Ómar

KA vann í kvöld 1:0 sigur á Haukum í sjöttu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Haukar voru fyrir leikinn í efsta sæti deildarinnar á markamun en missa Selfoss upp fyrir sig með tapinu í kvöld. KA komst hins vegar í fjórða sætið og er með tíu stig, þremur stigum minna en Haukar og Selfoss.

Það var David Disztl sem gerði sigurmarkið á Akureyrarvelli í kvöld en hann skoraði markið á 73. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert