Bikarmeistararnir fara í Garðinn

Logi Ólafsson þjálfari bikarmeistara KR.
Logi Ólafsson þjálfari bikarmeistara KR. mbl.is

Bikarmeistarar KR sækja 2. deildarlið Víðis úr Garði heim í 16-liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu karla en dregið var í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Íslandsmeistarar FH fara til Vestmannaeyja og leika við ÍBV og 2. deildarlið Hattar leikur við Breiðablik á útivelli. Þá mætast HK og Reynir Sandgerði á Kópavogsvelli.

Dráttur 16-liða úrslitanna er sem hér segir:

Fram - Grindavík
Breiðablik - Höttur
ÍBV - FH
Fylkir - Fjarðabyggð
Valur - KA
Víðir - KR
HK - Reynir Sandgerði
Keflavík - Þór Ak.

Viðureign HK og Reynis annarsvegar og Víðis og KR hinsvegar fara fram mánudaginn 6. júlí. Aðrir leikir verða háðir daginn áður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert