Njarðvík aftur í fyrstu deild

Njarðvíkingar tryggðu sér í dag sæti í 1. deild að ári er liðið gerði 2:2 jafntefli við nágranna sína í Reyni í Sandgerði, en Reynir varð að vinna til að komast upp fyrir Njarðvík.

Fjölmargir áhorfendur mættu á völlinn til að hvetja sitt lið til dáða

Leikurinn byjaði með miklum látum því strax á fyrstu mínútu var dæmd vítaspyrna á Njarðvíkinga og markverði þeirra vikið af velli.  Varamarkvörðurinn, Almar Elí Færseth kom í markið og varði vítaspyrnuna.

1:0 Sinisa Kekic kom Sandgerði yfir á síðustu mínútu fyrri hálfleiks

1:1 Ísak Örn Þórðarson jafnar metin á 53. mínútu og þá eru Njarðvíkingar uppi ef þetta verða úrslit leiksins.

1:2 Rafn Markús Vilbergsson 83. (víti)

2:2 heimamenn jafna á síðustu mínútunni.

Úrslit annara leikja í deildinni:

Grótta - Magni 3:2
Hamar - Víðir 2:0
Tindastóll - Hvöt 2:4

Þessi úrslit þýða að Magni og Tindastóll falla í þriðju deild.

Grótta hafði þegar tryggt sér sæti í 1. deild og Njarðvík náði öðru sætinu. Liðin tvö koma þar í staðinn fyrir Aftureldingu og Víking frá Ólafsvík.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert