Maradona öskuillur

Þungu fargi var létt af Diego Maradona eftir sigurinn á …
Þungu fargi var létt af Diego Maradona eftir sigurinn á Úrúgvæ. Reuters

Diego Maradona landsliðsþjálfari Argentínumanna var öskuillur út í þá sem gagnrýnt hafa hann og argentínska landsliðið á fréttamannafundi eftir sigur Argentínumanna á Úrúgvæum í undankeppni HM en með sigrinum tryggðu lærisveinar Maradona sér farseðilinn í úrslitakeppni HM næsta sumar.

,,Ég vil segja að allt það fólk sem hefur gagnrýnt mig og hefur farið með mig eins og rusl getur étið orð sín. Sigurinn er fyrir fólkið sem hafði trú á okkur en ekki fyrir það sem bar út lygasögur um okkur. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en þeir vita hverjir það eru,“ sagði Maradona.

,,Ég tileinka sigurinn þeim sem fylgdu okkur til Úrúgvæ og studdu við bakið á okkur, leikmönnum liðsins og fyrir fólkið sem starfar með mér. Ég vissi allan tímann að við myndum komast á HM. Ég sagði við leikmenn mína að ég vildi að þeir sýndu í leiknum hvers virði þeir væru og þeir gerðu það,“ sagði Maradona.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert